05júlí

Ja hérna hér...

Ég þarf að fara að sinna þessari bloggsíðu minni betur og kannski fá Brynju í heimsókn til að sýna mér hvernig í  ósköpunum maður fer að því að skipta um mynd. Þessi er búin að vera í tvö ár...

Af mér og mínum er allt gott að frétta, Brynjar er komin í land og verður í landi í allt sumar. Óla og Nói koma á morgun, það verður auðvitað mikil gleði. Móðir er búin að vera með annan fótinn.
Ég fer til læknis aftur 16 júlí og þá kemur í ljós hvað á að gera varðandi minn yndislega hjartagalla. Þetta er orðið gott, ég er orðin hundleið á þessari þreytu sem fylgir þessum galla.

Planið þokast áfram, vinnuhelgi er 11 og 12 júlí, ef einhverjum langar til að brenna nokkrum kalóríum þá er bara velkomið að mæta..

Mér gekk vel í skólanum, ansi ánægð með veturinn en er búin að lengja námið mitt, tek minna á hverri önn og verð lengur... það er ekki til nema ein Lísa :-D

Ættamót um helgina hjá Stapaætt, mikið fjör og mikið gaman, einnig ættahittingur hjá Síðufjölskyldunni og ekki var leiðinlegt þar. Hef ekki hlegið svona lengi.

Set bráðum inn myndir frá Kálfshamarsvík... fórum þangað í æðinslegu veðri..



05. júlí 2009 klukkan 21:00
Sćunn Sigvaldadóttir
Engin athugasemd
15febrúar

Jæja góðir landsmenn, komin  tími á blogg.
Ég fór á þorrablót á Hvammstanga og ég er enn að hlæja, jesús hvað skemmtiatriðin voru fyndin.
Þá er bara að skella sér á þorrablótið í Ásbyrgi þar sem við hjónaleysin (eins og Lísa segir) erum ein af þeim fjölmörgu sem eru í nefndinni. Össs það verður fjör.

Ég fékk símhringingu um daginn og mér tilkynnt að ég fari í vettvangsnám til Akureyrar, verð að vinna og læra á Hæfingastöðinni í Skógarlundi í sex vikur. Mig hlakkar svolítið til :-)

Og...
Brynjar fór á sjó í dag og viti menn hann veiddi hval..... og þá varð frúin glöð, tungan gjörsamlega lafir á meðan ég pikka...
Hnýsa kom í netið og endar á disknum mínum sluuuuurppp
Ós hjónin fá þann heiður að eta með mér og mínum í vikunni.

jæja þar til næst...

15. febrúar 2009 klukkan 21:36
Sćunn Sigvaldadóttir
2 athugasemdir
06janúar

Ég er svo ekki að nenna að sinna þessari síðu minni... Prófin búin, gekk ágætlega, féll reyndar í aðferðafræði en það var það nú alveg vitað, en ég var mjög ofarlega í hinu víííí svo ég er alveg sátt. Jólin komu og fóru með viðeigandi áti og gleði. Óla sis og familían hennar komu, einnig mamma og Bergur. Það var frábært að hafa litlu frændur mína um jólin, núna þegar allir eru farnir þá er mjög svo tómlegt í kofanum.
Brynjar farin á sjó og kemur ekki fyrr en í febrúar :-(
Svo við Garpur erum alein í kofanum
06. janúar 2009 klukkan 21:55
Sćunn Sigvaldadóttir
Engin athugasemd
04desember

Fékk þessa uppskrift senda


 Endilega prófa þessa stelpur!

 

 1 bolli vatn 
1 bolli sykur 
4 stór egg 
2 bollar þurrkaðir ávextir 
1 teskeið bökunarsódi 
1 teskeið salt 
1 bolli púðursykur 
1 bolli sítrónusafi 
1 bolli hnetur 
1 FULL flaska af Grand 



Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. 
Takið stóra skál. 
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt. 
Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. 
Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál. 
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur. 
Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni. 
Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni. 
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni. 
Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið. 
Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama. 
Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar. 
Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. 
Smyrjið ofninn. 
Stillið kökuformið á 250°. 
Gleymið ekki að hræra í stillaranum. 
Hendið skálinni út um gluggann. 
Athugið Grandið aftur. Farið að sofa. 

(Finnst ykkur ávaxtakökur hvort sem er góðar?).

04. desember 2008 klukkan 12:11
Sćunn Sigvaldadóttir
Engin athugasemd
19nóvember

Jæja margt er búið að gerast síðan síðast. Innilotur búnar og prófin eru að skella á! Hvað varð um alla heimavinnuna veit ég ekki.

Ji eina sögu verð ég að segja, það gerðist á föstudaginn síðastliðinn nánar tiltekið strax eftir vinnu í skólanum. Ég var að keyra heim (að verða komin að Litla-Ósi) og var að blaðra í símann við hana Brynju um gríðalega mikilvægt málefni þegar allt í einu sé ég haus af mús koma uppúr miðstöðinni við framrúðuna, beint fyrir framan stýrið. Ég garga af öllu mínum lífsins sálar kröftum og Brynja fékk væga heyrnaskerðingu á hægra eyra. Ég leit í spegilinn því ég ætlaði að stoppa bílinn allsnögglega en þá var traktor í "rassgatinum á mér" og ég þurfti gjörasvovel að keyra áfram. Dýrið tróð sér uppúr miðstöðinni og gekk í áttina að stýrinu, svo framalega að framloppurnar hengu niður af mælaborðinu, beint fyrir ofan hraðamælanna. Ég ákvað að drífa mig bara í Bakka og láta Brynju sjá um að taka dýrið. Ég keyrði þangað og horfðist í augu við músina alla leiðina enda var hún rétt við nefið á mér ( ég var viss um að hún myndi stökkva á mig ef ég liti undan ). Brynja kom út og tók á móti mér þegar ég hentist út úr bílnum, bað hana um að fjarlægja dýrið en neiiii hún hafði ekki mikinn áhuga á því en ég held að hún hafi bara ekki heyrt í mér blessunin. Í því kom Guðrún hans Gunna Kriss og henni fannst þetta nú ekki mikið mál og kom mér til bjargar, tók músina og setti hana útfyrir götu og ég sá dýrið rölta að næsta trjábeði.

jahh í hverju lendir maður ekki í???

Ég og Aníta erum farnar að fara í sund eldsnemma á morgnanna og guð hvað það er hressandi. Í fyrstu sundferðinni var einbeitinginn sett á "að lifa fyrsta tímann af". Sveinn var að vinna og honum fannst við eitthvað hálf aumar þarna hangandi við bakkan að reyna að ná andanum. En öss hvað við verðum orðnar góðar í vor...
19. nóvember 2008 klukkan 16:59
Sćunn Sigvaldadóttir
3 athugasemdir
01nóvember

Ég fór í matvörubúð um daginn, sem er ekki frásögu færandi nema að ég gómaði sjálfan mig að stara á kanil sem var í bauk uppí hillu, ég fór að velta því fyrir mér hvað kanill væri.. er þetta jurt? planta? En ég verð að segja ég hef ekki hugmynd um hvað kanill er, er einhver sem veit það? Ég væri mjög glöð ef einhver myndi segja mér það þá kannski hætti ég að haga mér svona furðulega í matvöruverslunum þ.e.a.s. starandi á kryddbauka :-)
01. nóvember 2008 klukkan 23:02
Sćunn Sigvaldadóttir
1 athugasemd
28október

Jæja núna er ég kominn í skólann og það sem meira er þá er próf í fyrramálið. Það er búið að ganga bara alveg ágætlega en jiiii hvað hvað er mikið heimanám á næstunni.

Síðastliðinn sunnudag þá átti ég sex vikna reykingaleysisafmæli, vííí til hamingju ég :-)
  
28. október 2008 klukkan 23:51
Sćunn Sigvaldadóttir
2 athugasemdir
15október

Kreppan....

Það eru allir að tala um kreppu, jú það eru erfiðir tímar það er nú alveg rétt en ég heyrði í einni gamalli konu og hún sagði að við ungdómurinn værum að miskilja þetta stórlega því um leið og við værum búin að missa allar eigur okkar og farin að róta í annarra manna görðum eftir kartöflum og rófum þá væri komin kreppa... og hana nú. Samt sem áður finnur maður nú svolítið fyrir þessu. Jólagjafirnar ögn dýrari en í fyrra, Bónus er ekki lengur besti vinur buddunnar og jafnvel hundamatur hefur hækkað töluvert. Hvað ætti maður að gera???
Jú jú margt er hægt að gera, eins og

# Búa til slátur, verum svolítið þjóðleg núna

# Kaupum þindar, eftir mikla klippivinnu og hakkvélatíma er  hakkpokinn (sirka 500 gr) á 100 kall.

# Búðu til jólagjafirnar ,núna er tíminn að láta krakkana teikna myndir og þú plastar þær í vinnunni, fyrirtaks jólagjafir handa ömmu og afa.

# taktu að þér að moka innkeyrslur, pínu aukapeningur og frí líkamsrækt.

# labbaðu í vinnuna, komin tími til að dusta rykið af gönguskónum.

# Farðu í kaffi í Bakka eða í kaffihorninu í Kaupfélaginu, frítt.

# tökum upp venjur Svía, að eiga tvisvar sinnum afmæli, daginn sem maður er fæddur og nafnadaginn. Frystu afgangana úr annarri veislunni og notaðu í hinni, þú kemur út í plús gjafalega séð.

# Hættu að borga stöð 2, kíktu í heimsókn til vina á sunnudagskvöldum til að sjá Dagvaktina.

# Ekki fara á rándýrar hárgreiðslustofur, keypti lit í kvh á 1200 og litaðu sjálf, eða kannski er tíminn til að sína sinn rétta lit, það eldast allir.

# Dorgaðu, allt úr sjónum er matur, það sem þú getur ekki étið núna, hengdu það upp, kannski bragðast það betur sigið.

# Brostu, kostar ekkert en ávinnur mikið

Jæja fullt af leiðum til að spara....

15. október 2008 klukkan 19:26
Sćunn Sigvaldadóttir
4 athugasemdir
06október





Lifðu lífinu afturábak.


Í næsta lífi vil ég lifa lífinu afturábak.

Maður byrjar dauður svo þá er það afstaðið.

Svo vaknarðu á elliheimili og þér líður betur með hverjum deginum. Þér er  sparkað þaðan út þar sem þú ert orðin of heilbrigður, ferð og nærð í ellilífeyrin þinn og svo þegar maður byrjar að vinna þá fær maður gullúr og partý fyrsta daginn.

Svo vinnur maður í 40 ár eða þangað til að þú ert nógu ungur til að njóta þess að hætta.

Þú stundar næturlífið, drekkur áfengi, og ert í raun óútreiknanlegur á allan hátt og þá ertu orðin klár fyrir framhaldsskóla.

Ferð svo í grunnskóla breytist ungling og leikur þér. Þú hefur engar ábyrgðir og breytist í barn þangað til þú ert fæddur/fædd.

Og svo endarðu síðustu níu mánuðina fljótandi um í umhverfi sem einna helst minnir á spa. Með þægilegu hitastigi og herbergisþjónustu tengda beint við þig og plássið verður meira og meira með hverjum deginum sem líður og svo VVVÚÚÚÚHHAAAA þú endar lífið með fullnægingu.


Þarf ég að segja meira?

06. október 2008 klukkan 19:24
Sćunn Sigvaldadóttir
2 athugasemdir
06október

Jæja núna eru stóðréttir búnar með tilheyrandi gleði. Ég var að vinna á föstudagskvöldið svo þann daginn missti ég af gleðinni. Á laugardag skundaði ég á Jörfa þar sem húsfrúin sat með staup í hönd og sötraði rósavín af miklum glæsileika. Eftir svolítið spjall og nokkra bjóra fórum við í réttina g rákum svo heim, ásamt Eiríki, Valla bróður, Sigga vinnumanni (á Jörfa) og fleiri góðu fólki. Tókst þetta nú alveg ágætlega hjá okkur, allir heilir á húfi.

Ammmælið......
Við fórum á Sírópið í afmælið hennar Anítu, fullt af fólki og allir glaðir og fullir af sólskini. Ég fór ekki á ballið, batteríið var búið hjá mér. Mér skilst að þar hafi verið mikið fjör... 
06. október 2008 klukkan 14:49
Sćunn Sigvaldadóttir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sćunn Sigvaldadóttir
  • Netfang: saeunnv@gmail.com
  • Stađur: Húnaţing Vestra

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari